Byggingaverktakar á Selfossi

Viðhald, viðgerðir, breytingar og nýbyggingar

Við sérhæfum okkur í viðhaldi og viðgerðum á eldra húsnæði, með sérstaka þekkingu á myglu og rakaskemmdum. Við erum staðsettir á Selfossi en þjónustum höfuðborgarsvæðið og Suðurland.

Nýtt: Bústaðavaktin Viðhaldsáskrift fyrir sumarhús. Við lítum eftir bústaðnum allt árið og sinnum smáviðhaldi. Skoða leiðirnar
Bjálkahús einangrað að utan og klætt, með stækkuðum palli og skjólvegg
Bjálkahús einangrað að utan og klætt. Pallur stækkaður og settur skjólveggur.
Sími
559 9090
Staðsetning
Miðtún 22, 800 Selfoss
Þjónustusvæði
Höfuðborgarsvæðið og Suðurland
Vettvangsskoðun
Án endurgjalds
Verðlagning
Fast tilboð eða tímavinna

Sérstaða okkar

Mygla og rakaskemmdir

Mygla er sjaldnast vandamálið sjálft heldur afleiðing af leka eða raka sem þarf að finna og stöðva. Annars kemur hún aftur. Við leitum að orsökinni, fjarlægjum skemmd efni og byggjum upp á nýtt.

Erling Magnússon, annar eigenda ES húsa, hefur sérþekkingu á myglu og er oft dómkvaddur matsmaður í gallamálum. Sú reynsla nýtist í verkin okkar.

Bóka úttekt á myglu eða raka
  • Úttekt og ráðgjöfVið metum umfang skemmda og finnum hvaðan rakinn kemur. Einnig er hægt að bóka sjálfstæða úttekt eða ráðgjöf vegna myglu eða galla, til dæmis við fasteignakaup eða fyrir húsfélög.
  • ViðgerðSkemmt efni er fjarlægt og orsökin löguð, hvort sem það er leki, lagnir eða frágangur.
  • UppbyggingVið göngum frá veggjum, gólfum og innréttingum svo allt sé eins og nýtt.

Þjónusta

Það sem við tökum að okkur

Mest af okkar vinnu er viðhald og viðgerðir á eldra húsnæði. Nýbyggingar tökum við líka að okkur.

Viðhald og viðgerðir

Almennt viðhald á eldra húsnæði, fúaviðgerðir og lagfæringar eftir leka.

Þök

Þakskipti, nýtt bárujárn, þakklæðning, einangrun og þakviðgerðir.

Eldhús, böð og innréttingar

Endurbætur innanhúss, ný eldhús, baðherbergi, gólfefni og innréttingar.

Viðbyggingar og breytingar

Stækkun á húsi eða sumarhúsi, nýir inngangar og breytingar á skipulagi.

Pallar og klæðningar

Sólpallar, skjólveggir, handrið og klæðning utanhúss.

Nýbyggingar og sumarhús

Íbúðarhús og sumarhús, frá burðarvirki að lokafrágangi.

Ferlið

Svona gengur þetta fyrir sig

  1. Þú hefur samband

    Sendu okkur línu í gegnum formið hér að neðan eða hringdu beint.

  2. Við komum og skoðum

    Fagmaður kemur á staðinn, tekur verkið út og ræðir það við þig. Það kostar ekkert.

  3. Verðáætlun

    Þú færð verðhugmynd eða verðáætlun. Svo vinnum við eftir föstu tilboði eða í tímavinnu, eftir því hvað hentar verkinu.

  4. Verkið unnið

    Við vinnum verkið og höldum þér upplýstum þar til því er lokið.

Verkefni

Nokkur af okkar verkum

Sýnishorn úr viðgerðum, þakskiptum, endurbótum og nýbyggingum síðustu ára. Smelltu á mynd til að stækka hana.

Fúaviðgerð í gólfi

Viðhald

Nýtt eldhús

Endurbætur innanhúss

Baðherbergi tekið í gegn

Endurbætur innanhúss

Nýtt bárujárnsþak

Þakskipti

Þakplötur hífðar á sinn stað

Þakskipti

Nýtt grindverk

Frágangur á lóð

Lagnaherbergi gert upp

Viðhald

Nýr inngangur

Breytingar

Viðbygging við sumarhús

Grind reist

Stækkun á sumarbústað

Grind og þaksperrur

Stækkun á sumarbústað

Klæðning og gluggar

Klæðning og gluggi

Sumarhús

Viðhaldsáskrift fyrir sumarhús

Bústaðavaktin

Fastur smiður lítur eftir bústaðnum allt árið, sinnir smáviðhaldi og segir þér hvað þarf að gera áður en það verður dýrt.

  • Ástandsúttekt með skýrsluÞak, klæðning, gluggar, pallur, lagnir og öryggi, með myndum og forgangsröðuðum tillögum.
  • Smáviðhald á staðnumÍ hverri heimsókn herðum við, þéttum, stillum og lögum það sem þarf.
  • Viðhaldssaga á einum staðAllar skýrslur og unnin verk geymd, sem kemur sér vel ef bústaðurinn er seldur.
  • Forgangur og afslátturÁskrifendur fara fremst í röðina og fá afslátt af stærri verkum.

Grunnur

11.700 kr. á mánuði

  • 2 heimsóknir á ári, vor og haust
  • Ítarleg ástandsskýrsla á vorin
  • Smáviðhald í hverri heimsókn
  • 10% afsláttur af aukaverkum

Plús

25.900 kr. á mánuði

  • 4 heimsóknir á ári, ein á hverri árstíð
  • Skýrsla í hverri heimsókn
  • Smáviðhald í hverri heimsókn
  • Heitur pottur og skoðun eftir óveður
  • 1 útkall innifalið
  • 15% afsláttur af aukaverkum

Verð með vsk. Efni greitt sérstaklega. Þjónustusvæði: Grímsnes, Bláskógabyggð, Flóahreppur og nágrenni.

Skrá bústaðinn

Leið
Er heitur pottur við bústaðinn?
Skráningin er ekki bindandi. Við höfum samband og göngum frá samningi.

Um okkur

Um ES hús

ES hús var stofnað af Erling Magnússyni og Snorra Sveinssyni. Erling er húsasmíðameistari og byggingastjóri, og fyrirtækið byggir á áratuga reynslu úr mannvirkjagerð, bæði í viðhaldi og nýsmíði.

Íbúðarhús með nýju bárujárnsþaki, smiður fagnar uppi á mæni

Erling Magnússon

Eigandi · húsasmíðameistari og byggingastjóri

Snorri Sveinsson

Eigandi

Fá verðáætlun

Fáðu fagmann í heimsókn

Við komum, tökum verkið út og gefum þér verðhugmynd eða verðáætlun. Því betri lýsingu sem við fáum, því betur getum við undirbúið heimsóknina.

  • Vettvangsskoðun þér að kostnaðarlausu
  • Fast tilboð eða tímavinna, eftir því sem hentar
Sími: 559 9090 Netfang: eshus@eshus.is
Við höfum samband eins fljótt og hægt er.